Þjálfarar 5.flokks kvenna eru:

Alla Gorgorian
Kristján Hrafn

Saturday, November 24, 2012

Breytt plan hjá Fjölnismönnum á morgun, sem sagt nýjasta leikjaplanið fyrir sunnudag. :)



Mæting 8.30


Áfram Fylkir!

Thursday, November 22, 2012

Barna og unglingráð vil minna foreldra á að ganga frá æfingagjöldum sem fyrst. Ef æfingagjöld hafa ekki verið greidd fyrir iðkanda er honum ekki heimilt að taka þátt í mótum sem flokkurinn fer á (gildir frá 1. nóvember fyrir haustönnina og 1. mars fyrir vorönnina).

Wednesday, November 21, 2012

 
 
Mót 2 um helgina -  5. flokkur yngra ár. Mót haldið hjá Fjölni í Grafarvogi.
Fylkir 1. og Fylkir 2.
 
Fylkir 2 mæta 30 mínútum fyrir fyrsta leik í Fjölnishúsið í Grafarvogi.
 
 
 
 
Fylkir 1. vera mættar og tilbúnar 30 mínútum fyrir fyrsta leik.



Sunnudagur




Tuesday, November 13, 2012

Keila á næsta laugardag.

Sæl verið þið.
Það kom upp sú hugmynd eftir mótið í gær að hrista hópinn aðeins saman með því að fara í keilu í Egilshöllinni næstu helgi.
Ég hringdi uppí höll og tók frá 4 brautir á milli 17-19 á laugardag. Hvernig hljómar það? Ég þyrfti að fá staðfestingu á því hversu margar geta mætt. Verðið er 2200 kr. Innifalið í því er keila í 55 mín og hálf 12" pizza og gos á eftir.
Ég mun útbúa miða fyrir dömurnar til að taka heim með sér af æfingu á miðvikudag þar sem að allar upplýsingar koma fram.

Kv. Þorvaldur (pabbi Elsu Karenar á yngra ári)

Wednesday, November 7, 2012



Leikjaplanið fyrir  helgina er inn á http://hsi.is/Motamal/5-8flokkur/5flokkurkvenna-Eldraar 


Fylkir 1

Margrét
Arndis
Diljá
Sæunn
Sóley
Weronika
Diana
Unnur  

Mæting  15.40 á föst 9 nóv

Fylkir 2

Sólrun
Sunna
Guðny
Halldóra
Irma
Elsa
Thelma 
Hrefna
Berglind

Mæting  11.10 á laugardag 10.nóv

Allar eiga að mæta i ferðagallanum

kv.Alla

Um næstu helgi er mót hjá 5.flokk eldri. Fylkir sendir 2 lið  á mótið. Barna og unglingaráð vill minna á að  enginn fer á mót án þess að vera búinn að greiða æfingagjöldin eða  setja æfingagjöldin í greiðsluferli.  Hafa samband við Svönu í Fylkishöll.

Kveðja
BUR

Tuesday, November 6, 2012






Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fjölmenna á Villibráðarkvöld Fylkis og kynnast aðeins betur.

Hið árlega Villibráðarkvöld Fylkis verður haldið laugardaginn 17. nóvember. Handknattleiksdeildin hefur staðið fyrir þessum viðburði síðustu ár og er þetta nú eitt glæsilegasta villibráðarhlaðborð landsins. Í fyrra urðu því miður margir frá að hverfa þar sem miðar seldust upp. Að þessu sinni flytjum við því hátíðina upp í Fáksheimili sem rýmra verður um mannskapinn og hægt að taka á móti fleiri gestum.
Veislustjórnin verður að þessu sinni í höndum Bjarna töframanns og einhver skemmtiatriði verða að auki. Áður en matarveislan hefst verður vínkynning; það verður happdrætti með fjölda glæsilegra vinninga og að borðhaldi loknu mun hljómsveitin Með allt að láni leika fyrir dansi líkt og undanfarin ár. Miðaverð er kr. 6.900 og hefst miðasala í afgreiðslu Fylkishallar í byrjun nóvember.
Allir Fylkismenn og aðrir unnendur góðrar villibráðar eru hvattir til að mæta - en þarna fá menn með í kaupunum skemmtun og dansleik til viðbótar við frábært villibráðarhlaðborð, um leið og menn styðja við bakið á mikilvægu íþróttastarfi hjá Fylki.
Líkt og undanfarin ár er matseðillinn einstaklega glæsilegur:

Forréttir:
Hreindýrapaté með sultuðum rauðlauk og heimalöguðu rifsberjahlaupi
Grafið lamb með bláberja-vinaigrette
Grafið og reykt nautafile með piparrótarrjóma
Gæsapaté
Villibráðar-tartar með capers og piparrót
Grafnar gæsabringur
Heitreyktar gæsabringur með jarðarberjasósu
Lax í sítrus
Reykt silungamús með hvítlaukssósu
Laxatartar með capers og lime
Heitreykt önd mað jarðarberjasósu og sesam-rucola
Aðalréttir:
Hreindýrabollur í gráðostasósu
Villikryddaðar gæsabringur
Lamba læri í kryddjurtum
Meðlæti:
Ferskt grænmeti
Waldorf salat
Gratin kartöflur
Rifsberjasulta og rauðlaukssulta
Rauðvínslegnar perur
Villibráðarsósa
Nýbakað brauð
Eftirréttur:
Súkkulaðikaka með berjum og rjóma

Sunday, November 4, 2012

Leikjaplan næstu helgi hjá 5.flokk kvenna eldri. Gæti breyst eh. fylgjast með http://hsi.is/Motamal/5-8flokkur/5flokkurkvenna-Eldraar . Valur sér um móið.




Friday, November 2, 2012

Æfingar falla niður í dag vegna veðurs.


Vegna tilmæla frá Almannavörnum sem hafa beint því til okkar að hugsa um að börn verði ekki hleypt einum úr eða í frístundastarf í dag, en spáð er öðrum veðurhvelli síðdegis.
Kveðja
BUR